Þetta kerfi sér um að halda utan um skráningu farþega í skoðunar- og skemmtibáta, þannig að útgerðir geta sjálfar fyllt inn farþegarfjölda í gagnagrunn. Kerfið er einfalt í sniðum og hentar bæði fyrir tölvur og snjallsíma.
Kerfið er hýst á heimasíðu hafnar (eða jafnvel útgerðar) þar sem útgerðir/notendur geta skráð sig inn með PIN til þess að setja inn farþegarfjölda og dagsetningu. Hafnirnar vinna úr þessum upplýsingum beint úr gagnagrunni. Þetta losar allt pappírsflóð og óþarfa tölvupósta og tvískráningu.
Tilboðsverð 125.000 kr. m/vsk (ekkert mánaðar- eða árgjald)
Listaverð 175.000 kr. m/vsk.
Innifalið er SMALI vefumsjónarkerfi og uppsetning. Kerfið keyrir á PHP og MySQL, sem flestir vefþjónar bjóða uppá.
Smellið á myndir til þess að stækka.